Kormlöđ Ţrá eđa Ljótur Ljósálfur?

Heilir og sælir lesendur góðir!

Ef ske kynni að Gimla vildi breyta, bæta við nafn dótturinnar eða bara eignast nýtt stykki, þá ákvað Gimla að skoða nöfn sem mannanafnanefnd hefur nýverið samþykkt. Gimlu líst einstaklega vel á nöfnin: Stígheiður Stjarna sem mætti segja að ætti uppruna sinn til fyrrum hestamennsku Gimlu. Drengjanöfnin Dufþakur Dreki eða Hraunar Grani eða Ljótur Ljósálfur gætu verið tilvísanir í hinar skemmtilegu Lord of the Ring myndir sem Gimla hefur mikið dálæti á og getur Gimla ekki gert upp á milli þeirra.
Gimla lætur hér fylgja áhugaverðan nafnalista, ótal samsetningar mögulegar!

STÚLKNANÖFN

Eggrún Bogey
Oddfreyja Örbrún
Dúfa Snót
Ljótunn Hlökk
Himinbjörg Hind
Randalín Þrá
Baldey Blíða
Bóthildur Brák
Loftveig Vísa
Þúfa Þöll
Þjóðbjörg Þula
Stígheiður Stjarna
Skarpheiður Skuld
Kormlöð Þrá
Ægileif Hlökk
Venus Vígdögg
Hugljúf Ísmey
Ormheiður Pollý
Geirlöð Gytta
Niðbjörg Njóla

DRENGJANÖFN
Beinteinn Búri
Dufþakur Dreki
Hildiglúmur Bambi
Fengur Fífill
Gottsveinn Galdur
Grankell Safír
Kaktus Ylur
Þorgautur Þyrnir
Melkólmur Grani
Ljótur Ljósálfur
Náttmörður Neisti
Hlöðmundur Hrappur
Hraunar Grani
Ráðvarður Otur
Reginbaldur Rómeó
Kópur Kristall
Þangbrandur Þjálfi
Sigurlás Skefill
Þjóðbjörn Skuggi

Hvernig líst ykkur á?
Berglind mín, hér kemur tækifærið til að finna hið rétta nafn á Rassamús! 

Lifið heil og ekki missa tökin á veruleikanum!

Kona einsömul

Heilir og sælir lesendur góðir!

Gimla ráfaði í dag á þessa síðu og rak augun í athugasemdir sem  til mikillar gleði bentu til þess að a.m.k. tvenn pör augna litu við á síðuna Hlæjandi Gimla ákvað því að bregðast ekki þessum augnpörum og taka til við að hamra á lyklaborðið.

Gleðilegt ár!

Gimla er nú stúlka einsömul í Höll Sumarsins í 12 stiga frosti með kertaljós og heitt á könnunni... yndislegt! Fyrir þá sem ekki vita að þá er Höll Sumarsins, öðru nafni Sumarhöll, ágætlega stæðilegur skúr með illa einangruðum veggjum sem samnemendur Gimlu hafa aðstöðu til að læra í.

Lítið hefur nú borið til tíðinda í lífi Gimlu. Jólin einkenndust af pökkum og veikindum og á gamlárskvöld sat þríeykið litla sátt í holti álfanna og hakkaði í sig góðgæti og hélt á nokkrum stjörnuljósum....

Litla familían við það að setjast við veisluborðið

Þríeykinu fannst nauðsynlegt að festa þennan atburð á filmu, myndavélin var stillt á "timer" og út kom þessi yndislega mynd sem gæti allt eins verið af hástéttarfjölskyldu frá Bretlandi árið 1850 Ullandi

Stjörnuljós

Hér er þó öllu nútímalegri mynd þar sem mæðgurnar skemmtu sér konunglega við galdra stjörnuljósanna og dóttirin vel græjuð með gleraugun sín...

Gimla hefur nú næstum lokið þjálfun í starfi.. 2 fundir eftir og svo er því lokið... fljótt að líða! Þá taka við skrif lokaritgerðar sem mun væntanlega leiða til útskriftar í vor og er Gimla strax komin í kvíðakast yfir því....

Gimla þarf einnig að fara að huga að hátíðahöldum.. betri helmingurinn verður 30 nú fljótlega. Eins og glöggir lesendur muna að þá var mikið um dýrðir þegar Gimla varð 25; óvænt veisla með tilheyrandi og síðast en ekki síst.. vikuferð til Ítalíu í sólina. Hvernig á Gimla að toppa það með 107 þús kr. í námslán á mánuði (það er fremur hallærislegt að nota peninga betri helmingsins í afmælisgjöf fyrir hann er það ekki??). Hugmyndir vel þegnar takk fyrir!!

Kæru lesendur, Gimla er ánægð að vera komin aftur til sýndarveruleikans!

Lifið heil og ekki gleyma sólinni; hún kemur í ljós á endanum!

Desembermánuđur

Heilir og sælir lesendur góðir.

Gimla er nú móðir tveggja ára gemlings þó ótrúlegt sé!



Ótrúlega vel lukkað eintak!
Hins vegar trúir Gimla varla að það séu tvö ár liðin síðan hún lá sveitt á fæðingardeildinni að koma skvísunni í heiminn!



Það hlýtur að taka á að stækka svona mikið á svona stuttum tíma!

Annars er það helst í fréttum að Gimla er að gera verkefni, já.. svo má ekki gleyma því að Gimla er líka að gera annað verkefni.

Annars, Gimla fór í búð um daginn sem er ekki í frásögur færandi nema að ein skvísan í röðinni á kassanum sönglaði allan tímann sem hún var í röðinni. Hvað er það? Af hverju syngur fólk upphátt í biðröð? Hljóðmengun segir Gimla, engin löngun var til staðar að hlusta á þetta blessaða lag.

Gimla tók könnun á netinu um það hvers konar vinnu hún ætti að vera í. Í ljós kom að Gimla á ekki að vinna með fólki. Það hentar henni víst best að hafa sem minnst samskipti í vinnu sinni. Gimla er því greinilega á rangri hillu í lífinu, hvernig gat þetta farið fram hjá henni að samskiptahæfileikar hennar eru með því minnsta sem gerist??

Lifið heil og passið ykkur á jólageðveikinni.

Andvökunćtur!

Lesendur!

Nú er andvökunótt hjá Gimlu, enn eina ferðina! Andvökunætur Gimlu eru orðnar ansi tíðar nú upp á síðkastið og ekki veit hún hvað veldur?



Óli lokbrá virðist vera í varanlegu verkfalli þessar vikurnar og spurning hvort Gimla taki ekki til sinna ráða og reddi sér þeim pillum sem sparkar í rassinn á Óla?

Gimla rakst á skrif móður 16 mánaða barns þar sem hún lýsir því hvað barnið getur gert:

  • Hún setur sjálf á stöð 36 á fjarstýringunni af sjónvarpinu til að horfa á babytv 
  • Hún kann að fara í leiki í símanum mínum sjálf
  • Er næstum orðin altalandi,
  • Hún klæðir sig sjálf í fötin sín
Sjáiði þetta fyrir ykkur? Við erum að tala um rétt rúmlega árs gamalt barn. "Barnið vaknar á laugardagsmorgni, klæðir sig í fötin sín. Það gengur inn í stofu kveikir á imbanum og velur stöð 36 með fjarstýringunni til að horfa á uppáhaldssjónvarpsstöðina sína. Barnið kallar svo: "Mamma, komdu á fætur.. mig langar í mjólkurkex og djús! Drífðu þig áður en næsti Stubbaþáttur byrjar og svo vantar mig líka nýja bleiu!" Á meðan mamman tekur mjókurkexið og pelann til nær barnið í gemsa móðurinnar og leikur sér í snake.



Já, mörg eru undur veraldar!

Lifið heil og hjálpið Gimlu að finna pillurnar góðu

Nóvember

Heilir og sælir lesendur góðir.

Eins og ykkur er kunnugt um þá hóf Gimla þjálfun í starfi nú á haustdögum. Líkar Gimlu það vel og vill hún standa sig vel og ganga í augun á sér æðri umsjónarmönnum.
Menntastofnunin sem Gimla hefur verið búsett í seinustu 4-5 árin hefur kennt Gimlu mikið um bandaríska geðflokkunarkerfið. Svo óheppilega vill þó til að evrópska kerfið er yfirleitt notað þegar út fyrir menntastofnunina er komið.
Til þess að geta fylgt sér æðra fólki eftir ákvað Gimla því að næla sér í íslenskar þýðingar á geðröskunarheitum skv. evrópska kerfinu.

Gimla rak meðal annars augun í eftirfarandi heiti geðraskana:

F480. Kvellislekja
Læknirinn þinn tilkynnir að þú sért haldinn kvellislekju... upplýsandi?
Gimla gúgglaði slekjunni og þetta kom í ljós:

A psychological disorder characterized by chronic fatigue and weakness, loss of memory, and generalized aches and pains, formerly thought to result from exhaustion of the nervous system. No longer in scientific use.

Traustvekjandi ekki satt?
Hverjum datt annars í hug að nota KVELLLISLEKJU????

F502 & F503 Magamálsstol og ódæmigert magamálsstol
Magamálsstol? Er viðkomandi með stol vegna magamáls? Hefur viðkomandi óviðráðanlegar áhyggjur af magamáli sínu? Ummáli magans þá eða? Hvaða magamálsstol er annars ódæmigert?

Jah, Gimla spyr sig

F933 Systkinametingsröskun
Hvaða systkini hafa ekki fengið þessa röskun af og til? Væri ekki eðlilegra ef röskunin væri skilgreind sem Systkinaómetingsröskun? Þarf að raska þetta?

F942 Afhömluð tengslaröskun í bernsku
Afhömluð? Var tengslaröskunin hömluð en var hömlunin síðan tekin af? Eða hvað? Var tengslaröskunin dulin en kom svo í ljós?
HA?

F980 & F981 Óvefræn ámiga og áskita
Var ekki hægt að finna aðeins mannúðlegri orð? Barnið þitt er með áskitu.. það skítur á sig. Hvurnig væri: Óvefræn óstjórn hægða og þvags?
Svalur

F982 Fæðsluröskun í frumbernsku og bernsku
Hvað er
fæðsla?? "Barnið þitt á erfitt með fæðslu, það verður að fara í fæðslumeðferð"


Gimla setur punkt hér.

Lifið heil og ekki gleyma lífsorkunni í hjartanu og hægri upphandleggsvöðva!





Gleđi í ţynnkunni!

Heilir og sælir lesendur góðir!

Myrku dagarnir eru að lýsast, allavega í Gimluhaus! Í gær var dóttirin sett í langt næturpass svo foreldrarnir gætu farið á skrallið í útskriftarteiti Sandsint og þarf vart að nefna að það heppnaðist svona líka vel.

Takk fyrir okkur elsku Sandur!


Sandurinn bauð upp á veitingar sem virtust fara "ágætlega" í gesti Svalur



Villimey lætur gamminn geysa í rauðvínsdrykkjunni!



Sandurinn dannaður en eins og sést héldu engin bönd þeim Gimlu og ástmanni!



Svona á víst að kreppa bísepana til að þeir komi betur í ljós Óákveðinn ... eða hvað?

Sumir þola bara ekki svona mikil átök.....


... og sofa á sínum sæla í taxa... Hlæjandi


Hægt er að skoða fleiri myndir úr villta partýinu hér til hliðar undir linknum "Myndir"

Já, Bakkus léttir svo sannarlega lund og Gimla lætur ekki hér við sitja, næstu helgi verða Bakkusarkynni endurnýjuð en í þetta sinn með kóköndurum Gimlu.

Eins og lesendur hafa eflaust tekið eftir að þá er Gimla í höfuðhársbreytingum um þessar mundir. Pönkara/rokkaralúkk er hún Gimla að reyna að ná sér í. Hárgreiðsludama Gimlu er með hana í átaki og segir að það taki nokkra mánuði að fá hárið eins og það "á" að vera. Gimla er frekar á því að halda rokkaralúkkinu en til að fá ykkar álit þá skellti hún inn svaðalegri skemmtilegri könnun hér til hliðar. Gimla bendir lesendum á að svara könnuninni!

Annars er lítið títt héðan af holti álfanna enda virka heilasellur Gimlu ekki sem skyldi þessa stundina. Gimla segir þetta því gott í þetta skiptið.

Lifið heil lesendur góðir og munið eftir kommentunum svo Gimla sín verði glöð og hugarmyrkrið lýsist enn frekar!

Myrkir dagar

Lesendur góðir!

Gimla byrjar á því að kasta árnaðarkveðjum á Sandinn sinn vegna útskriftar hans og formlegs boðs í teiti því til fögnuðar!



Sér til mikillar furðu og óánægju þá er þessi mynd önnur af tveim sem Gimla á af Sandinum ódrukknum, ódansandi eða ferjandi. Þessi mynd er síðan 2003 svo Sandurinn hefur nú eitthvað yngst síðan þá Glottandi

Annars eru myrkir dagar þessa dagana, bæði veðurslega og hugfarslega séð hjá Gimlu. Gimla hefur aldrei á sinni stuttu ævi upplifað annan eins skólaleiða! Gimla getur ekki beðið eftir að þessari önn ljúki eins og hún var nú búin að hlakka til þessara mánaða... hvað veldur??

-- Gimla er nánast alla daga án bekkjarfélaga sinna og vantar því meiri félagsskap... einfalt mál!

-- Lokaritgerð! Hver nennir að pæla í því??

-- Stór fyrirlestur yfirvofandi Gráta Gimla einfaldlega nennir ekki að búa hann til!

-- Matseðill Gimlu farinn út um þúfur... believe Gimla... það er áfall!

Gimla mun þó hrista þetta slen galvösk af sér í janúarbyrjun Svalur

Þegar Gimla var að leita af sómasamlegum myndum af Sandinum sínum rakst hún á ansi margar skemmtilegar myndir af mismunandi tímabilum.. Njótið!



Gimla 5 ára alsæl hjá ljósmyndara



Gimla unglingur í lúðrasveit



Gimla stúdína.... Þegar Gimla horfir nú á þessa mynd þá veltir hún fyrir sér hvort einhvers konar áfengisfráhvörf séu lýsandi fyrir þessa mynd, augn- og munnsvipur með furðulegasta móti...



Þarna átti bumban eftir að stækka í 1 1/2 mánuð í viðbót... Gimla skilur ekki enn af hverju hún skagaði ekki fram undan þunganum...

Lifið heil lesendur góðir og ekki gleyma að hugsa jákvætt í daglegu amstri til að lífsorkan flæði óhindrað um áruna ykkar og lífsandann!

Útskriftir

Heilir og sælir lesendur góðir!

Gimla vill byrja á því að óska henni Guggu innilega til hamingju með útskriftina


 Koss Módellúkkið alveg 100%

Gimla og fjölskylda voru boðin í fjölskylduveislu hjá Guggunni svo fósturdótturin gæti örugglega mætt líka og samfagnað með Guggu frænku sinni



Þarna eru vinkonurnar í myndapósu en minna eintakið var eitthvað hálfskelkað yfir öllum látunum í smáfólkinu sem tröllreið pleisinu Ullandi

Síðar um kveldið hélt Gimla einsömul af stað í svaðilför til Guggunnar þar sem vinir tröllriðu pleisinu.. þar lærði Gimla meðal annars hvernig best sé að snúa fólk niður á hárinu sem ku vera hið ákjósanlegasta bragð til að sulla bjór framan í fólk... smá sýnishorn af villta fólkinu


Hvor er líklegri til að beita slíkum bellibrögðum??


Gimla kastar einnig hálfum árnaðarkveðjum á Sandinn sem útskrifaðist einnig um helgina. Sandurinn hefur hins vegar hvorki haldið veislu né boðið Gimlu formlega í eina slíka svo hinn helmingur kveðjunnar bíður betri tíma.

Annars er gott að frétta úr holti álfanna!

Lifið heil og ekki gleyma treflinum og föðurlandinu!


Ömmufrumur

Heilir og sælir lesendur góðir!

Gimlu rámar í að hafa einhvern tímann lært um ömmufrumur sem hafa það hlutverk að þekkja andlit. Gimla hefur lengi vitað að ömmufrumurnar hennar eru í það minnsta gallaðar, ef ekki stórskemmdar. Þetta er hvimleitt ástand, að þekkja ekki fólk, jafnvel þó hrókasamræður hafi átt sér stað við andlitslausu manneskjuna...
Þetta er sérlega áberandi í lífi Gimlu um þessar mundir þar sem hún stundar nú vettvangsnám í grunn- og leikskólum ónefnds bæjarfélags og hefur samskipti við ógrynni fjölda á degi hverjum. Starfsfólk umræddra grunnskóla heldur vísast að Gimla sé fæddur hrokagikkur sem sjái sér ekki fært um að tala niður til almúgans því hún heilsar hvorki né brosir til fólks sem hún "þekkir ekki".

Gimla situr óteljandi fundi og næstum marga tugi námskeiða í vettvangsnámi sínu og eru margir farnir að þekkja Gimlu með nafni, Gimla þekkir nöfnin á ca. 3 manneskjum sem hún hefur hitt og átt samræður við oftar en 10 sinnum. Gimla er orðin vön því að "bláókunnugt" fólk labbi upp að henni: "Nei, bleeeeesuð Gimla mín, hvað syngur í þér í dag? Bara komin í Bla bla skólann með henni Siggu sálfræðingi?" ----- Gimla man ekki eftir að hafa hitt þetta fólk og starir á það stórum augum, reynir að halda uppi einhverjum samræðum en þó á mjög ósannfærandi hátt.

Gimla ákvað að taka málin í sínar hendur og vera blíð og kurteis við flesta sem hún hittir á skólagöngunum. Gimla fór því að vinka í gríð og erg til andlitslausra manneskja, heilsa vinalega og spyrja hvað væri að frétta. Gimla hefur greinilega heilsað mörgum sem hún hefur aldrei hitt því eftir þetta fóru starfsmenn skólanna að líta undan þegar þeir nálguðust Gimlu eða rýna í pappíra sem þeir voru með í höndunum.

Gimla hangir í frakkalafi hinna ýmsu sálfræðinga í vettvangsnámi sínu og fær leyfi til að sitja hina ýmsu fundi. Hinir annars ágætu sálfræðingar gleyma þó oft að kynna Gimlu sína og fara að spjalla við fundarmenn. Gimla stendur þá í útjaðri hópsins eins og illa gerður hlutur og reynir að finna svigrúm til sjálfskynningar.

Gimla var einmitt í einum slíkum aðstæðum um daginn. Hún var búin að standa nokkra stund í jaðri hópsins og var að fiska eftir hinni langþráðu sjálfskynningu til að aflétta "illa gerður hlutur" tilfinningunni. Loksins kom það! Gimla kynnti sig með virktum og tók í þurra, naglalanga fingur: Sæl, ég heiti Gimla og er sálfræðinemi.... Eigandi handarinnar svarar þá að bragði (og grípur meira að segja frammí): "Já, eins gott þú kynntir þig, ég var einmitt að velta fyrir mér hvað þessi NEMANDI væri að væflast hér í kringum okkur." (hlær þurrum sveittum dónahlátri)
Gimla endurtekur: Staðsetning fundarins var í GRUNNSKÓLA!! þar sem hámarksaldur nemenda er 16 ára.


Gimla hélt þó andliti og hló þurrum og hásum hlátri til baka á eiganda þurru handarinnar....
Eftir þetta hefur Gimla farið að efast um að hún verði tekin trúanleg sem sálfræðingur eftir tæpt ár!
Ullandi Gimla vissi hún væri UNGLEG en kannski ekki alveg svona dramatískt...
Ömmufrumumálið er því leyst, ef hinn óhreini almúginn lætur svona dónaskap út úr sér þá er eins gott að vera ekkert að eiga ónauðsynleg samskipti við hann Svalur

Gimla fór um helgina til karls föður síns til að sækja lambakjöt sem karlinn gaf henni. Gimlu hlakkaði nú til að fylla kistuna af gómsætu lambakjöti en það runnu á hana tvær grímur þegar hún sótti það í sláturkofann:





Ætli Gimla sé með restina af svörtu hausunum í kistunni?

Glottandi

Lifið heil lesendur góðir og klæðið ykkur vel í kuldanum!


Notađu ađeins hendurnar til ađ slá barniđ ţitt.

Heilir og sælir lesendur góðir!

Gimla var, sem oftar, stödd í einni af bókaverslun höfuðborgarinnar þar sem hún rak augun í uppeldisbók. Á forsíðu bókarinnar var sagt að hægt væri að öðlast þekkingu á því hvurnig væri hægt að venja barnið sitt af bleiu, hvað teldist hollt mataræði og seinast en ekki síst; góð ráð til að aga barnið.

Gimla hugsaði gott til glóðarinnar með það í huga að bráðum fer litla dýrið að hætta á bleiu. Að þessu hugsuðu fjárfesti Gimlan í skruddunni með bros á vör.

Þegar heim var komið fór Gimlan að glugga í bókina og rakst meðal annars á þessa klausu:

"Að slá barnið: Flestir foreldrar freistast stundum til að slá barnið sitt og mörgum finnst það áhrifarík leið til að glíma við slæma hegðun, en það ætti aldrei að vera helsta refsiaðferðin. Ef barnið er agað á þennan hátt þarf að gera það tafarlaust og sjaldan ... Notaðu aðeins hendurnar og sláðu aðeins einu sinni."

Gimla vill taka það fram að bókarskruddan er gefin út árið 2000

Sem sagt, uppskrift af því hvernig ætti helst að slá barnið sitt. Gimla áttaði sig á þessari stundu á því að hún hafði gert lélega fjárfestingu. Fyrir utan þetta þá voru aðeins nokkrar línur um koppaþjálfun sem Gimla hafði upphaflega ætlað að kaupa bókina til... enda var það sérstaklega auglýst á forsíðunni, bévítans dónar. Í þeirri umfjöllun er aðeins sagt að það eigi ekki að neyða barnið til að sitja á dollunni.. hrmpf...

Lifið heil... og munið að slá börnin ykkar AÐEINS einu sinni!

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Könnun

Á Gimla ađ halda ótrauđ áfram međ rokkaraklippinguna?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...